Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Vísinda- og tækniráð

Vísinda- og tækniráð hefur það hlutverk að efla vísindarannsóknir, vísindamenntun og tækni­­þróun í landinu í því skyni að treysta stoðir íslenskrar menningar og auka sam­keppnis­hæfni atvinnulífsins. Vísinda- og tækniráð starfar skv. lögum nr. 2/2003. 

Forsætisráðherra er formaður ráðsins, en þar sitja einnig fjármálaráðherra, iðnaðarráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra auk 16 fulltrúa sem eru tilnefndir í ráðið af ráðuneytum, háskólum og aðilum vinnumarkaðarins, auk þess sem forsætisráðherra getur kveðið allt að fjóra ráðherra til setu í ráðinu.

Ráðið markar stefnu stjórn­valda í vísinda- og tæknimálum til þriggja ára í senn. Umfjöllun ráðsins á hvoru sviði um sig er undirbúin af starfsnefndum ráðsins, vísindanefnd og tækninefnd. Vísinda- og tækniráð fundar fjórum sinnum ári.


Tengiliður

Ritari Vísinda- og tækniráðs:
Friðrika Harðardóttir
Mennta- og menningarmálaráðuneyti
Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík
Sími 545 9500

tillögur að Einföldun vísinda- og nýsköpunarkerfisins

Starfshópur innan Vísinda- og tækniráðs skilaði skýrslu 2. apríl 2012 með tillögum um einföldun á vísinda- og nýsköpunarkerfinu. Í skýrslunni kemur fram heildstæð lýsing á kerfinu og tillögur um grundvallarendurskoðun á fjármögnun og um einföldun stofnanna og háskóla. Hér er tengill í upplýsingar um tillögur að einföldun. Einnig eru tenglar í upplýsingar um opna fundi til kynningar á tillögunum, dagana 26. apríl og 3. maí 2012.


STEFNA VÍSINDA- OG TÆKNIRÁÐS

Vísinda- og tækniráð samþykkti nýja stefnu í vísinda- og nýsköpunarmálum á fundi sínum 18. desember 2009. Stefna Vísinda og tækniráðs 2010-2012 er birt undir heitinu Byggt á styrkum stoðum.

Stefnan byggir á þremur leiðarljósum:

  • Samvinna og samnýting
  • Gæði og ávinningur
  • Alþjóðleg vísindi og nýsköpun

Stjórnborð

Fara á forsíðu Minni leturstærð Stærri leturstærð Senda síðu Prenta síðu Hamur fyrir sjónskerta

Vísinda og tækniráð mótar opinbera stefnu í vísindum og tækni á Íslandi
Vefurinn keyrir á vefumsjónarkerfinu Outcome Vefstjóra