Lýsing á aðgerð
Þátttaka karla í jafnréttismálum.
Utanríkisráðuneytið leggi áherslu á hlutverk karla í jafnréttismálum á alþjóðavettvangi. Í því felist m.a. að halda rakarastofuráðstefnur hjá alþjóðastofnunum sem Ísland er aðili að í þeim tilgangi að fá karla til að axla ábyrgð á kynjajafnrétti, t.d. hjá Alþjóðabankanum. Jafnframt verði haldið uppi málflutningi af hálfu Íslands um þetta málefni hjá alþjóðastofnunum sem Ísland á aðild að og í tvíhliða samskiptum við önnur ríki. Karlmenn á Íslandi verði hvattir til að taka undir markmið HeForShe-herferðar UN Women í samræmi við skuldbindingar Íslands í IMPACT-átaki UN Women og samvinna innan íslenska stjórnkerfisins og við frjáls félagasamtök verði efld. Markmið verkefnisins verði aukið eignarhald og þátttaka meðal karlmanna í málefnum er varða jafnrétti kynjanna
Tímaáætlun: 2020–2023.
Kostnaðaráætlun: Fjármagnað.
Ábyrgð: Utanríkisráðuneytið.
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna: Styður einkum markmið 5.
Staða verkefnis
Nokkrir Rakarastofuviðburðir hafa verið haldnir á árinu 2023. Fyrsti viðburðurinn var haldinn um miðjan febrúar sl. á vegum fastanefndar Íslands hjá Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í París. Einnig var haldinn Rakarastofuviðburður á vegum Fastanefndar Íslands í Strassbourg á vettvangi Evrópuráðsins.
Haustið 2022 var verkfærakista fyrir starfsfólk utanríkisráðuneytisins gefin út og miðlað á innri vef. Verkfærakistan snýr að framkvæmd og eftirfylgni rakarastofuviðburða sem hægt er að hafa til hliðsjónar þegar utanríkisráðuneytið stendur fyrir Rakarastofum í samstarfi við alþjóðastofnanir og í tvíhliða samstarfsríkjum.
Íslensk stjórnvöld veita aðgerðabandalagi um kynbundið ofbeldi forystu í átaksverkefninu Kynslóð jafnréttis (e. Generation Equality Forum) á vegum UN Women. Á þeim vettvangi gerði Ísland sameiginlega skuldbindingu með stofnuninni um aukna áherslu á þátttöku karla og drengja í stefnumótun og aðgerðum sem miða að því að útrýma kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi. Á þeim grundvelli veitir Ísland fjárframlag til HeforShe-herferðar UN Women á árunum 2022 og 2023, og er það framlag umfram kjarnaframlag Íslands til stofnunarinnar. Á miðannafundi Kynslóðar jafnréttis sem fram fór í tengslum við allsherjarþing SÞ í september þar sem Ísland gegndi meðgestgjafahlutverki ásamt Tansaníu, var einnig tilkynnt um viðbótarframlag til HeforShe-herferðar UN Women.
Verkefnið er komið vel á veg.
Ábyrgð
Utanríkisráðuneytið